Drónarnir voru sagðir ógna skipum í Hormússundi.AP/ISNA / Amirhosein Khorgooi Bandaríkjaher skaut niður tvo árásardróna Íranshers yfir Hormússundi í nótt.Reuters hefur eftir bandarískum embættismanni að drónarnir hafi ógnað skipaumferð um sundið. Donald Trump Bandaríkjaforseti fullyrti í gærkvöld að sátt hefði náðst milli Bandaríkjanna og Íran og stutt væri í undirritun friðarsamkomulags. Fyrr um daginn hótaði hann þungum árásum á Íran. Hann dró síðar í land vegna góðs árangurs við samningaborðið.