Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu dæmdur í 30 ára fangelsi

Yoon Suk-yeol, fyrrverandi forseti Suður-Kóreu, var í héraðsdómi Seúl í dag dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir tilraun til að dikta upp stríðsástand.Forsetinn sendi dróna inn fyrir landamæri Norður-Kóreu haustið 2024. Það var átylla fyrir setningu herlaga í landinu í desember það sama ár.Í febrúar var forsetinn fyrrverandi dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir tilraunir til að lama störf suðurkóreska þingsins með setningu herlaganna.Saksóknarar vildu auk þess meina að drónaflug forsetans hefði aukið spennu milli nágrannaríkjanna á Kóreuskaga. Aðgerðir hans hefðu auk þess leitt til þess að trúnaðarupplýsingum, meðal annars um hernaðarstyrk, hefði verið lekið.Yoon hefur áfrýjað dómnum. Hann heldur því fram að herlög hafi verið sett á í þágu þjóðarinnar.Lögmenn Yoons segja ákærurnar byggðar á sandi. F
Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu dæmdur í 30 ára fangelsi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd