Bajrakitiyabha prinsessa og Rama X. Taílandskonungur.AP / Wason WanichakornTaílenska prinsessan Bajrakitiyabha er látin 47 ára að aldri. Hún var elsta barn Taílandskonungs. Taílenska hirðin greindi frá þessu í dag.Prinsessan, sem var iðulega kölluð Bha eða Patty í heimalandinu, veiktist alvarlega fyrir rúmum þremur árum og hefur verið á sjúkrahúsi síðan. Hún andaðist á fimmtudag.Bha var eitt þriggja barna konungs sem bar formlegan titil og var því mögulegur ríkisarfi.