Musk orðinn fyrsti billjónamæringurinn eftir frumútboð SpaceX

SpaceX safnaði 75 milljörðum Bandaríkjadala, um 9.400 milljörðum króna, í frumútboði í dag. Viðskipti með bréf félagsins hefjast á Nasdaq-hlutabréfamarkaðinum í New York á morgun.Í frumútboðinu var hver hlutur í félaginu seldur á 135 dali, nærri 17 þúsund krónur. Fyrir vikið er virði þess metið 1,8 billjónir Bandaríkjadala. Miðað við það virði eru eignir Elons Musks, sem fyrir var ríkasti maður í heimi, nú metnar á yfir eina billjón Bandaríkjadala. Ein billjón eru milljón milljónir – eða þúsund milljarðar.Í frétt Reuters segir að eignarhlutur hans í SpaceX sé þessa stundina um 866 milljarða dala virði. Því til viðbótar er stór hluti eignasafns hans bundinn í hlutabréfum rafbílaframleiðandans Tesla.Eftir að viðskipti með bréf félagsins hefjast er óvíst hvað gerist. Þau gætu hækkað í verði e
Musk orðinn fyrsti billjónamæringurinn eftir frumútboð SpaceX

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd