Már Wolfgang Mixa, dósent við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, telur að vilji íslensk stjórnvöld ná verðbólgunni niður þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir og til að mynda hækka skatta. Stýrivextir nægi ekki einir og sér til að ná niður verðbólgu.