Óvenjulega hár hiti hefur mælst á Suðurskautslandinu þar sem 28 ára gamalt hitamet fyrir júnímánuð hefur verið slegið. Loftslagsfræðingurinn Jose Luis Stella hjá argentínsku veðurstofunni segir í samtali við AFP að þróunin endurspegli áframhaldandi hlýnun á svæðinu og að ís bráðni nú á óvenjulegum hraða þrátt fyrir að vetur sé hafinn á suðurhveli jarðar.Við argentínsku rannsóknarstöðina Esperanza á norðurhluta Suðurskautsins mældist hitinn 15,4°C þann 6. júní, sem er hæsti júníhiti sem þar hefur verið skráður. Fyrra metið var 13,3°C og hafði staðið frá árinu 1998. Meðalhiti í júní við stöðina er hins vegar um 6 gráðum undir frostmarki.Tvær aðrar argentínskar rannsóknarstöðvar á svæðinu, Marambio og San Martin, skráðu einnig metháan hita dagana 5. og 6. júní. Við Marambio fór hitinn í 11,8