Dan Jarvis skipaður nýr varnarmálaráðherra

Fyrrverandi herforinginn Dan Jarvis hefur verið skipaður nýr varnarmálaráðherra Bretlands, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að John Healey sagði af sér embætti. Jarvis tekur við á viðkvæmum tíma fyrir ríkisstjórn Keirs Starmer forsætisráðherra, sem hefur glímt við vaxandi óánægju innan eigin flokks og röð afsagna ráðherra undanfarnar vikur.Sex ráðherrar hafa nú hætt í ríkisstjórn Starmers á einum mánuði. Keir Starmer forsætisráðherra hefur verið í margs konar vandræðum undanfarnar vikur og mánuði, þá helst fyrir skipun Peters Mandelson í embætti sendiherra í Bandaríkjunum eftir að ljóst varð um náin tengsl hans við Jeffrey Epstein. Staða hans veiktist enn frekar með afsögn John Healey.Healey varð sjötti ráðherra bresku ríkisstjórnarinnar til að segja af sér á einum mánuði. Í afsagnarbréf
Dan Jarvis skipaður nýr varnarmálaráðherra

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd