Guðmundur Andri telur ekki rétt að kalla ágreining sem undanfarið hefur myndast innan raða Samfylkingarfólks klofning. Hann segist þó halda að nýleg stefnubreyting, kröpp hægri beygja, hafi ekki verið nægilega mikið rædd á vettvangi flokksins. Guðmundur er einn þeirra sem skrifuðu undir skoðanapistil þar sem hópur félagsmanna Samfylkingarinnar og óflokksbundins jafnaðarfólks mótmælir brottfararstöð ríkisstjórnarinnar.