Verð á matvöru á Íslandi er 55 prósent meira að meðaltali en annars staðar í Evrópu. Fyrir utan Sviss er hér dýrast að kaupa í matinn segir í yfirstandandi athugun Samkeppniseftirlitsins á dagvörumarkaði. Mjólkurvörur er 90 prósentum yfir meðaltalsverði og kjötvörur 74 prósentum.Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir verð hafa hækkað mjög mikið.„Það hefur dunið svolítið á okkur þessi áróður um að það sé bara út af launahækkunum. Og það er ekki rétt. Iðulega eru það launahækkanir sem elta verðhækkanir en ekki öfugt.“Forsendur bresta ef neysluvísitalan í ágúst verður ekki undir 4,7 prósentum.„Mér finnst staðan frekar þung,“ segir Halla.„Við horfum á það að forsendur kjarasamninga eru að fara að bresta í haust að öllum líkindum til og við í verkalýðshreyfingunni stöndum frammi fyrir þeirri ákv