Fæðingum fjölgar um meira en þriðjung á Akureyri

Fimmtíu og sex fleiri börn hafa komið í heiminn á fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri en á sama tíma í fyrra. Deildarstjóri segir aukninguna mjög ánægjulega eftir lægð undanfarin ár.Fæðingar það sem af er þessu ári eru meira en þrjátíu og fimm prósent fleiri en í fyrra.Ingibjörg Jónsdóttir hefur tekið á móti börnum á fæðingardeildinni síðan 1990. Hún telur líklegt að þarna sé að verða uppsveifla eftir lægð undanfarinna ára.„Ég held þetta sé bara þessi eðlilega sveifla sem er alltaf í fæðingum, það koma svona toppar og svo koma lægðir og það er alltaf þannig í gegnum árin“, segir Ingibjörg.Á Landspítala hafa fæðingar nánast staðið í stað milli ára; um það bil þrettán hundruð börn fæddust þar á fyrstu fimm mánuðum ársins.Frjósemi á Íslandi hefur verið mæld síðan 1853. Hún hefur aldrei ver
Fæðingum fjölgar um meira en þriðjung á Akureyri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd