Ari og Pétur í hagræðingarhópi Reykjavíkurborgar

Ari Edwald, borgarfulltrúi Miðflokksins, og Pétur Marteinsson, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, sitja í nýjum stýrihóp um hagræðingu í Reykjavíkurborg. Þetta kemur fram í erindisbréfi Hildar Björnsdóttur borgarstjóra. Stýrihópnum er ætlað að leiða innleiðingu skipulagsbreytinga í stjórnsýslu borgarinnar.Á fundi borgarráðs í dag var lögð fram tillaga Hildar Björnsdóttur borgarstjóra um að samþykkt yrði erindisbréf stýrihóps um hagræðingu og stjórnkerfisbreytingar í borgarkerfinu.Ari og Pétur eru einu fulltrúarnir úr minnihlutanum sem sitja í stýrihópnum. Sanna Magdalena Mörtudóttir, oddviti Vinstrisins, gagnrýndi í bókun að fjórir fulltrúar meirihlutans sitji í hópnum en eingöngu tveir fyrir hönd minnihlutans. Fulltrúar úr meirihlutanum eru Hildur, Björg Magnúsdóttir og Róbert Ragnarsson,
Ari og Pétur í hagræðingarhópi Reykjavíkurborgar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd