Krabbameinsfélagið veitti 118 milljón króna styrk til 13 rannsókna

Árlega greinast að meðaltali 2.055 einstaklingar með krabbamein og 1 af hverjum 3 Íslendingum fær krabbamein á lífsleiðinni. Vísindasjóður Krabbameinsfélagsins hefur veitt styrki á ári hverju frá árinu 2017 til að stuðla að framförum í krabbameinsrannsóknum.Á tíu árum hefur sjóðurinn veitt 119 styrki fyrir alls 774 milljónir króna. Í ár var heildarstyrkveiting sjóðsins sú stærsta frá upphafi eða 118 milljónir króna og þrettán styrkir veittir. Þessi hlutu styrki * Erna Magnúsdóttir hlýtur 12.000.000 kr. fyrir rannsóknina: Kortlagning víxlverkana frumuvistar og Waldenström Macroglobulinaemia æxla með notkun sjálfskipuleggjandi örlíffæra beinmergs. * Siggeir Fannar Brynjólfsson hlýtur 12.000.000 kr. (framhaldsstyrk) fyrir rannsóknina: Greining á stakskorti í ónæmisfrumum heilbrigðra arfbera
Krabbameinsfélagið veitti 118 milljón króna styrk til 13 rannsókna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd