Enn ein afsögn bresks ráðherra veikir stöðu Starmers enn frekar

Afsögn John Healey varnarmálaráðherra Bretlands í dag kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Keir Starmer forsætisráðherra hefur verið í margs konar vandræðum undanfarnar vikur og mánuði, þá helst fyrir skipun Peters Mandelson í embætti sendiherra í Bandaríkjunum eftir að ljóst varð um náin tengsl hans við Jeffrey Epstein. Staða hans veiktist enn frekar með þessari afsögn.Ástæðan sem Healey gefur fyrir afsögninni er að áætlun Starmers um fjárfestingar í varnarmálum næsta áratuginn – sem hefur ekki verið birt ennþá – geti orðið til þess að draga úr öryggi Bretlands. Hvorki Starmer né fjármálaráðuneytið hafi sýnt vilja til að koma með það sem til þurfi til að verja landið á tímum aukinna ógna. Hann hafi skýrt þetta út fyrir Starmer og eigi nú engra annarra kosta völ en að segja af sér.Starmer
Enn ein afsögn bresks ráðherra veikir stöðu Starmers enn frekar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd