Stytting hringvegarins um Húnavallaleið við Blönduós og Vindheimaleið í Skagafirði hefur verið rædd í rúman áratug. Í samgönguáætlun til ársins 2040, sem verður líklega samþykkt á Alþingi á næstu dögum, er hvergi minnst á þessar leiðir sem myndu stytta veginn um allt að 20 kílómetra.„Mér hefði fundist eðlilegt, ef við horfum til lengri framtíðar, að Húnavallaleið og Vindheimaleið væru inni í samgönguáætlun. Það er hægt að stytta akstursleiðina milli Eyjafjarðar og Reykjavíkur um 45 mínútur,“ segir Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, og vísar til framkvæmda við Borgarnes og Sundabrautar. Mikill meirihluti þeirra sem svöruðu nýlegri könnun Samgöngufélagsins er hlynntur Húnavallaleið. ANNAR ÞINGMAÐUR SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS ER Á MÓTI Ólafur Adolfss