Leggur til að laun bæjarstjóra og kjörinna fulltrúa hækki ekki

Glænýtt bæjarráð á Akureyri lagði til, á öðrum fundi sínum í gær, að kjörnir fulltrúar og bæjarstjóri fái ekki vísitöluhækkun launa sem koma á til framkvæmda 1. júlí.„Stærsta hagsmunamál heimila og fyrirtækja eru verðbólga og vextir. Við erum að leggja okkar af mörkum með þessum hætti, að frysta laun, og það eru blikur á lofti í efnahagsmálunum, kjarasamningar í haust. Þetta er okkar aðgerð til að sýna samstöðu í þessum efnum því sveitarstjórnir geta lagt sitt af mörkum í baráttu við verðbólgu og vexti,“ segir Berglind Ósk Guðmundsdóttir bæjarstjóri á Akureyri.Málið hefur ekki verið afgreitt úr bæjarráði. Berglind á von á að það verði samþykkt og um það verði breið sátt.„Ég held að við getum alveg náð góðri sátt. Ég held að við séum þokkalega sammála um að það er hlutverk sveitarfélaganna
Leggur til að laun bæjarstjóra og kjörinna fulltrúa hækki ekki

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd