Stjórnir Festu lífeyrissjóðs og Gildis-lífeyrissjóðs hafa ákveðið að hefja viðræður um sameiningu. Greint er frá þessu í sameiginlegri tilkynningu frá lífeyrissjóðunum.„Í viðræðunum verður m.a. skoðað hvort sameining sé hagfelldur kostur fyrir sjóðfélaga beggja sjóða sem og hvort sameining geti skilað sér í aukinni stærðarhagkvæmni, bættri þjónustu og enn öflugri sjóði til framtíðar. Fyrir liggur að sjóðirnir eru líkir að eðli og uppbyggingu, meðal annars með mjög sambærilegt réttindakerfi og samþykktir,“ segir þar.Nýr sjóður Festu og Gildis yrði sá næststærsti á landinu gangi sameining eftir, með um 1.600 milljarða króna eignir miðað við stöðu sjóðanna í lok síðasta árs.Þetta er ekki í fyrsta sinn undanfarið sem lífeyrissjóðir ræða sameiningu. Á síðasta ári sameinuðust Almenni lífeyrissjó