Viðar Ingason, hagfræðingur VR, segir rannsóknir hafa tilhneigingu til að sýna fram á að launahækkanir séu ekki helsti drifkraftur verðbólgu. Aðrir þættir hafi meiri áhrif.„Þessi staðhæfing, að laun séu helsti drifkraftur verðbólgunnar, á sér veika stoð í rannsóknum,“ segir Viðar í viðtali við fréttastofu. Hann flutti erindi í morgun á fundi VR, LÍV og Fagfélaganna um verðbólgu, verðlag og laun.„Þetta hljómar vissulega skynsamlega í eyrum fólks vegna þess að það vita flestir að laun eru kostnaðarliður hjá fyrirtækjum. En verðbólgu undanfarið, eins og á Íslandi, er í mun meira mæli að finna í húsnæðisverði og til dæmis matarverði. Þannig að það hefur reynst erfitt að sýna fram á það að laun séu helsti drifkrafturinn.“ KRÖFUR FYRIRTÆKJA OG LAUNAFÓLKS ÓSAMRÝMANLEGAR Viðar rýndi í morgun í