Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð þar sem ráðist var gegn netþjónustu sem gekk undir nafninu AudiA6.Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu voru íslenskir innviðir notaðir af brotamönnum.Rannsókn málsins teygir anga sína víða um veröld en netþjónustan er talin hafa hýst peningaþvætti með rafmynt fyrir hátt í fjögur hundruð milljónir evra á árunum 2022 til 2025.Í fréttatilkynningu Europol um málið segir að netþjónustan hefur verið afar vinsæl meðal netglæpamanna og glæpagengja sem stunda gagnagíslatöku.Þeir grunuðu í málinu eru einnig taldir standa á bak við netglæpavefinn „Dark2Web“ sem er notaður til að auglýsa ólöglegar þjónustur og tengja saman netglæpamenn um allan heim.Lögreglan vann málið í samstarfi við ríkissaksóknara og í samvin