Framkvæmdastjóri Hagkaups segir að starfsfólki hafi orðið bylt við þegar hótun barst á skrifstofu fyrirtækisins í Skútuvogi í morgun. Hótunin hafi verið þess eðlis að talið var skynsamlegt að hafa samband við lögreglu, þar sem vopnaburði var hótað.Sá sem hringdi inn hótaði að beita bæði skotvopni og eggvopni. Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, staðfestir það.Lögregla segist hafa grun um hver hafi hringt á skrifstofuna og hótað starfsfólki. Unnið sé að því að hafa uppi á honum til að ná tali af honum. Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.Sigurður segist ekki hafa viljað taka neina sénsa í morgun.„Við fáum símtal frá aðila sem hringir á skrifstofu og hefur uppi ákveðnar hótanir sem við myndum flokka sem alvarlegar. Það alvarlegar að við heyrum í lögreglunni,“ segir Sigur