Mannréttindasamtökin Amnesty International hafa sakað Ísraela um þjóðernishreinsanir gegn Palestínumönnum á Vesturbakkanum. Rannsakendur samtakanna segja aukinn hraða á uppbyggingu landtökubyggða á Vesturbakkanum og hún sé studd af ríkinu. Þúsundir Palestínumanna hafi verið reknir af heimilum sínum.