Hópur félaga í Samfylkingunni og fólks sem titlar sig óflokksbundið jafnaðarfólk krefst þess að framkvæmd laga um brottvísunarstöð sem samþykkt voru í vikunni verði stöðvuð þar til tryggt hefur verið að börn verði ekki frelsissvipt. Nýkjörinn borgarfulltrúi segir stefnu flokksins í málaflokknum skýra. ÓÁNÆGJA INNAN FLOKKSINS EKKI NÝ AF NÁLINNI Hópurinn birti áskorun til forystu flokksins á Vísi og undir hana rita 55 manns, þar á meðal Oddný G. Harðardóttir fyrrverandi formaður, Björgvin G. Sigurðsson fyrrverandi ráðherra og þingmaður og aðrir sem gegnt hafa trúnaðarstörfum fyrir Samfylkinguna.Nýkjörinn borgarfulltrúi flokksins, Stein Olav Romslo, er á listanum.„Við höfum séð hægri bylgju í landinu, til dæmis í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum og þessi stefna í útlendingamálum hefur