Kona á þrítugsaldri sem sakfelld var fyrir stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu gegn starfsmanni á vistheimilinu Vinakoti árið 2022 fær ekki áheyrn Hæstaréttar. Hún taldi málið hafa verulegt almennt gildi þar sem það varðaði mannréttindi minnihlutahóps og þær kröfur sem gera verði til rannsóknar brota þeirra sem standi höllum fæti í samfélaginu.