Ný stjórnsýsluframkvæmd Náttúruverndarstofnunar vakti hörð viðbrögð hjá ljósmyndurum landsins sem töldu hana skerða atvinnufrelsi sitt. Framkvæmdin tók gildi 17. maí og átti að takmarka drónaflug á 26 friðlýstum svæðum víðs vegar um landið fyrir alla nema þá sem væru að starfa við kvikmynda- og auglýsingagerð.Talsmaður Ljósmyndarafélags Íslands lýsti yfir þungum áhyggjum af stöðunni í samtali við fréttastofu. Nú hefur Náttúruverndarstofnun brugðist við og leiðrétt orðalagið í stjórnsýsluframkvæmdinni. Nú veitir stofnunin ekki aðeins leyfi fyrir kvikmynda- og auglýsingagerð heldur einnig: vegna rannsókna, vöktunar, eftirlits, framkvæmda, kvikmyndatökuverkefna (s.s. kvikmyndagerð, auglýsingar, sjónvarpsþættir og í fréttaskyni), atvinnuljósmyndunar og leyfisskyldra viðburða. MARKMIÐIÐ AÐ D