Tólf lögreglumenn slasaðir eftir mótmæli gærkvöldsins

Óeirðirnar í Belfast á Norður-Írlandi héldu áfram í gærkvöld. Mótmælendur kveiktu elda og frömdu skemmdarverk en lögreglan svaraði með því að sprauta vatni til að koma fólki á brott. Sextán voru handteknir og tólf lögreglumenn slösuðust en lögreglan segir ástandið þó hafa verið skárra en á þriðjudagskvöld.Kveikjan að mótmælunum er hrottaleg árás í Belfast á mánudagskvöld þegar maður var margítrekað stunginn og skorinn með hnífi. Þrítugur Sómali, sem er með dvalarleyfi í Bretlandi, hefur verið ákærður fyrir árásina og var leiddur fyrir dómara í gær. Mótmælin beinast að innflytjendum.Mótmælendur köstuðu bensínsprengjum og grjóti að lögreglu þegar hún reyndi að koma í veg fyrir að mótmælendurnir kæmust að hóteli þar sem hælisleitendur eru hýstir. Bensínsprengjurnar slösuðu nokkra lögreglumenn
Tólf lögreglumenn slasaðir eftir mótmæli gærkvöldsins

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd