Í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1 var fjallað um klípuna sem Trump hefur komið sér í þar sem hvorki gengur né rekur að fá Írani til að semja um frið eða varanlegt vopnahlé. Árásir Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna á Íran hafa haft í för með sér efnahagsörðugleika um víða veröld. Trump viðhafði afar sérstök ummæli er hann sagðist elska verðbólgu sem er bein afleiðing hækkunar olíuverðs. Í Heimsglugganum var einnig fjallað um hernaðaruppbyggingu Rússa á vesturlandamærum sínum sem Norðurlönd og Eystrasaltsríkin telja ógna sér. BLÓÐUG ÁTÖK ÞRÁTT FYRIR OPINBERT VOPNAHLÉ Það er enn opinberlega vopnahlé í átökunum í Mið-Austurlöndum en þess sér varla stað því Ísraelsmenn gera stöðugt árásir í Líbanon, Íranir skjóta á Ísrael til að hefna fyrir og svo skutu þeir niður bandaríska þyrlu fyrr