John Healey sagði í dag af sér sem varnarmálaráðherra Bretlands. Hann segir að auknar fjárveitingar þurfi til að byggja upp hernaðargetu breska hersins svo hægt sé að efla varnir Bretlands á viðsjárverðum tímum.Healey segir í afsagnarbréfi sínu að Keir Starmer hafi verið ófær um að tryggja þá fjármuni og að fjármálaráðuneytið undir stjórn Rachel Reeves hafi verið óviljugt til þess. Varnarmálaráðherrann segist ekki hafa átt annan kost en að segja af sér. Hann vísar til þess að hafa fengið upplýsingar um útgjaldaáætlun til varnarmála á mánudag. Hún dugi hvergi nærri til.