Stjórnvöld hafa hert taumhald í hagstjórn með viðeigandi hætti til að bregðast við innlendum eftirspurnarþrýstingi. Þrátt fyrir það hafa launahækkanir verið töluverðar, verðbólga haldist mikil og verðbólguvæntingar háar. Jafnframt hefur aukin alþjóðleg óvissa vegna átaka í Mið-Austurlöndum aukið hættu á að hagvöxtur verði minni en ella og að verðbólga verði meiri.Þetta er meðal þess sem fram kemur í árlegri úttekt sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem kynnt var á fundi í Safnahúsinu í morgun.Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, undir forystu Metodij Hadzi-Vaskov, átti fundi í maí og byrjun júní með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra, Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra, Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra og öðrum fulltrúum hins opinbera og einkageirans í tengslum við árlega