Boðar hallalaus fjárlög „sama hvað það kostar“

Ráðherrar ríkisstjórnarinnar og þingmenn stjórnarandstöðunnar tókust á um það á Alþingi í dag hvort uppfæra þyrfti fjármálaáætlun vegna brostinna forsendna.Stefán Vagn Stefánsson, varaformaður Framsóknarflokksins, og Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tóku til máls í óundirbúnum fyrirspurnum við upphaf þingfundar.Báðir spurðu þeir hvers vegna ríkisstjórnin og stjórnarflokkarnir uppfærðu ekki fjármálaáætlun. Þeir vísuðu meðal annars til aukins atvinnuleysis og minnkandi hagvaxtar til marks um að forsendur fjármálaáætlunar væru brostnar. Þeir vísuðu einnig til dekkri horfa í nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans.Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra svaraði fyrirspurn Stefáns Vagns. Hún sagði að ekki væri komið uppfært mat á tekjum og útgjöldum ríkissjóðs og því væri ekki hæg
Boðar hallalaus fjárlög „sama hvað það kostar“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd