Framkvæmdum og endurbótum sem fyrirhugaðar voru á Lönguhlíð og Drápuhlíð í Reykjavík hefur verið slegið á frest. Íbúum var tilkynnt um þetta á dögunum og sagt að vegna tafa sem orðið hafa muni ekki nást ásættanlegur árangur fyrir veturinn við lagnavinnu.