Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem hefur lokið árlegri úttekt sinni á íslensku efnahagslífi, telur stjórnvöld hafa með viðeigandi hætti hert taumhald í hagstjórn til að bregðast við innlendum eftirspurnarþrýstingi. Þrátt fyrir það hafi launahækkanir verið töluverðar, verðbólga haldist mikil og verðbólguvæntingar háar. Jafnframt hafi aukin alþjóðleg óvissa vegna átaka í Mið-Austurlöndum aukið hættu á að hagvöxtur verði minni en ella og að verðbólga verði meiri.