Verkefnastjóri hjá Samtökum fyrirtækja í landbúnaði segir marga þætti koma til skoðunar þegar horft sé til hækkunar á matvælaverði en verð á matvöru á Íslandi er meðal þess hæsta sem þekkist í Evrópu. Hann segir lækkun á virðisaukaskatti geta hjálpað til við að lækka verð á matvöru.Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins og verkefnastjóri hjá Samtökum fyrirtækja í landbúnaði, segir innlenda framleiðslu viðkvæma fyrir ólíkum þáttum.„Launaþróunin hefur til dæmis veruleg áhrif á framleiðslukostnað og eins og staðan er í dag hafa í rauninni allir undirliggjandi þættir við framleiðslu hækkað.Það eru laun, húsnæði, opinber gjöld, aðföng, fjármagnskostnaður, verðbólga, raungengi og orkukostnaður. Allt skiptir þetta gífurlegu máli fyrir innlenda fra