Segja afstöðu stjórnvalda gegn enduruppbyggingu í Grindavík fjandsamlega

Járngerður, hagsmunasamtök íbúa um framtíð og endurreisn Grindavíkur, tekur undir með nýkjörinni bæjarstjórn Grindavíkur þar sem bæjarstjórn segir afstöðu stjórnvalda gagnvart skjótri enduruppbyggingu bæjarins neikvæða og fjandsamlega.Þetta kemur fram í áskorun sem Járngerður hefur sent á alla þingmenn. Erla Hjördís Ólafsdóttir og Valgerður Ágústsdóttir frá Járngerði voru gestir í Morgunútvarpinu í morgun. Þær segja stöðu íbúðamála í Grindavík setja þeim sem vilji búa þar verulegar skorður.„Það er staðreynd að flestir Grindvíkingar seldu fasteignir sínar til fasteignafélagsins Þórkötlu sem var bjargræði fyrir okkur til að koma okkur fyrir á nýjum stað í erfiðu ástandi og það má ekki gleyma því að okkur var meinaður aðgangur að sveitarfélaginu svo vikum og mánuðum skipti þannig að við þurft
Segja afstöðu stjórnvalda gegn enduruppbyggingu í Grindavík fjandsamlega

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd