Hætta við að leyfa fangelsun 13 ára barna

Umdeild tillaga sænsku ríkisstjórnarinnar um að heimila að 13 ára börn verði sett í fangelsi hefur verið dregin til baka. Gunnar Strömmer dómsmálaráðherra Svíþjóðar segir þetta hafa verið ákveðið þegar í ljós kom að ekki væri meirihluti fyrir þessari breytingu á þinginu.Tillagan vakti strax miklar deilur þegar hún var kynnt í vetur. Hún var viðbragð við því að glæpagengi eru í auknum mæli að ráða til sín börn yngri en 15 ára til að fremja glæpi þar sem ekki má setja þau í fangelsi samkvæmt gildandi lögum. Alls bárust 126 umsagnir um þessa tillögu og voru flestar gagnrýnar eða lýstu beinni andstöðu við tillöguna. Meðal þeirra voru bæði lögregla og fangelsisyfirvöld. LÆKKAR Í 14 ÁR Í STAÐ 13 Yfirvöld hyggjast í staðinn leggja fram nýja tillögu þar sem sakhæfisaldurinn verður lækkaður niðu
Hætta við að leyfa fangelsun 13 ára barna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd