Brynja M. Ólafsdóttir, sérfræðingur í regluvörslu Landsbankans, segir mikilvægt að fólk andi þrisvar og lesi vel skilaboð sem komi þegar fólk notar rafræn skilríki. Fjársvik hafa margfaldast síðustu ár og hún segir stöðuna sérstaklega slæma síðustu vikur. Brynja var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun.