Mörg okkar dreymir um að geta gengið út úr húsi á morgnana, gripið nýbakað brauð í bakaríinu, sest á kaffihús eða rölt niður að höfninni án þess að þurfa að setjast upp í bíl. Nú gefst tækifæri til að láta þann draum rætast í nýjum íbúðum sem eru komnar í sölu í miðbæ Hafnarfjarðar að Strandgötu 26. Opið hús í dag og á laugardaginn.