Í hverri viku er leitað til húseigandafélagsins vegna vangoldinnar leigu. Þetta segir Hildur Ýr Viðarsdóttir, formaður félagsins. Hún telur þróunina tengjast versnandi fjárhagsstöðu fólks.„Við erum að rekja það til þess að það sé farið að þrengja að í samfélaginu og þess að fleiri og fleiri hafa ekki efni á að borga leigu. Þá leita leigusalarnir til félagsins um úrræði til að bregðast við þeirri stöðu.“Leigusalar geti sent skriflega greiðsluáskorun greiði leigjandi ekki leigu fyrir gjalddaga. Berist greiðslan ekki innan sjö daga geti leigjandi rift leigusamningnum.„En þá er ekki þar með sagt, þó að það sé búið að rifta leigusamningnum, að leigjandinn sé þá að fara út úr henni. Ef hann þrásitur eignina og er í henni áfram þá þarf leigusalinn að leita leiða til að fá leigjandann borinn út.“