55 félagar í Samfylkingunni og óflokksbundnir jafnaðarmenn mótmæla lögum um brottvísunarbúðir í aðsendri grein á Vísi í dag og krefjast þess að framkvæmd laganna verði stöðvuð þar til tryggt verði að börn verði ekki svipt frelsi sínu vegna stöðu foreldra sinna.„Þessi krappa hægri beygja í stefnu flokksins hefur ekki verið rædd á vettvangi flokksins og er að okkar mati í andstöðu við meginstefnu hans og grundvallarsjónarmið,“ segir í greininni.Greinarhöfundar segja rétt að doka við og íhuga pólitíska vegferð sem sé í andstöðu við sjónarmið mannréttindasamtaka og sjónarmið mannúðar og mildi á meðan þingmenn Sjálfstæðisflokksins hrósi Samfylkingunni fyrir sinnaskiptin. Fólkið krefst þess jafnframt að málið verði tekið til formlegrar umræðu á vettvangi flokksins.Greinin ber fyrirsögnina „Ekki