Fjármálaáætlun ríkisins á að vera eitt mikilvægasta hagstjórnartæki stjórnvalda. Hún á að sýna hvernig stjórnvöld hyggjast forgangsraða, halda utan um útgjöld, tryggja sjálfbærni ríkisfjármála og skapa trúverðugleika gagnvart heimilum, fyrirtækjum og þeim sem fjármagna ríkissjóð. Þess vegna er alvarlegt þegar fjármálaáætlun er lögð fram á forsendum sem liggur fyrir að hafa þegar brostið.