Eftir samdráttarskeið á Vestfjörðum frá 1980 hafa Vestfirðingar náð vopnum sínum á ný með öflugri nýsköpun og nýtingu náttúruauðlinda. Ævintýraleg umskipti hafa átt sér stað sem byggjast á miklum vexti í lagareldi, líftækni og ferðaþjónustu. Hundruð starfa hafa skapast og fjárfestingar nema tugum milljarða. Fólksfækkun og samdrætti hefur verið snúið við.