Í dag, fimmtudaginn 11. júní, á milli klukkan 06:00 og 09:00 er stefnt á að færa umferð um Breiðholtsbraut af norðurakbraut yfir á suðurakbraut milli Jaðarsels og Vatnsendahvarfs. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið.