Elín Klara Þorkelsdóttir, landsliðskona í handbolta, spilaði sitt fyrsta tímabil með Sävehof í Svíþjóð í vetur. Óhætt er að segja að hún hafi komið inn af krafti því hún varð sænskur meistari með liðinu og valin besti leikmaður deildarinnar. „Ég var ekkert að búast við því að þetta myndi ganga svona vel. Maður er bara að venjast umhverfinu, flytja að heiman í fyrsta skipti og í nýtt land, nýtt lið. Það er margt sem spilar inn í. Svo mætir maður út og er að spila á móti og með sterkari leikmönnum og það gerir mann betri fyrir vikið.“Elín Klara segir að hlutirnir ytra hafi smollið eftir Evrópumótið með landsliðinu síðasta vetur. „Þetta var alveg krefjandi. Maður saknaði fjölskyldunnar og vina. En ég myndi segja að eftir jól, eftir stórmótið í desember, þá fannst mér ég finna mig betur. Þá le