Maður handtekinn grunaður um að hafa stungið tvo menn með hnífi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöld eða nótt mann sem grunaður er um að hafa stungið tvo menn með hnífi skammt frá lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Tvímenningarnir komu þangað, annar með blæðandi sár í andliti og voru báðir fluttir á bráðamóttöku til aðhlynningar. Maður var handtekinn sem hafði skotvopn í fórum sínum á öldurhúsi í vesturhluta Reykjavíkur. Hann ógnaði engum með vopninu, sem reyndist eftirlíking, að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar. Sá handtekni er sagður þekktur hjá lögreglu líkt og maður sem handtekinn var eftir að hann gekk berserksgang í rafvöruverslun og annar sem var handtekinn skammt frá grunnskóla þar sem hann hafði farið um ófrjálsri hendi. Þýfið úr skólanum var endurheimt og eins megnið af ránsfeng manns sem handtekinn var eftir að hann braus
Maður handtekinn grunaður um að hafa stungið tvo menn með hnífi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd