Bandaríkjaher hóf árásir á Íran að nýju í gærkvöld, sem svarað var með árásum á bandarískar herstöðvar í nágrannaríkjunum. Íranski byltingarvörðurinn kveðst hafa eyðilagt stjórnstöð Bandaríkjahers í Jórdaníu og grandað þar fjölda orrustuþotna. Hann gerði einnig árásir á miðstöð fimmta flota Bandaríkjahers í Barein, sem gegnir lykilhlutverki í viðveru hans í Mið-Austurlöndum. Miðstjórn Bandaríkjahers, CENTCOM, segir hvorki hafa orðið tjón á mannvirkjum né mönnum þar. Hún tilkynnti um miðja nótt að atlögum að Íran hefði linnt um sinn. Þeim hafi verið beint gegn eftirlits-, samskipta- og loftvarnarkerfum Íranshers. Donald Trump forseti sagði skömmu áður en Bandaríkjaher lét til skarar skríða Írana hafa Bandaríkin að fíflum varðandi samningaviðræður um frið og því skyldu þeir fá að finna til t