Fólki á flótta fækkaði á síðasta ári

Fólki á flótta fækkaði á síðasta ári í fyrsta sinn um tíu ára skeið. Frá þessu er greint í árlegri skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Tæplega fimmtán milljónir sneru aftur til upprunasvæða sinna og þar af 4,4 frá útlöndum til heimalandsins, sem er næstfjölmennasta afturhvarf frá því skráning hófst fyrir sextíu árum.Yfir níutíu af hundraði þeirra eru Afganir, Súdanir og Sýrlendingar. Barham Salih, forstöðumaður stofnunarinnar, bendir á að fólkið hafi verið undir þrýstingi að halda heim í aðstæður sem séu langt í frá öruggar. Það sé engin lausn og geti stökkt fólki á flótta á ný.Í árslok 2025 voru tæplega 118 milljónir á vergangi og hafði fækkað um 5,4 milljónir frá árinu áður. Af þeim teljist tæpar 42 milljónir flóttamenn og 60 prósent þeirra koma frá aðeins átta löndum.Nærri
Fólki á flótta fækkaði á síðasta ári

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd