Fimm mexíkóskir lögreglumenn voru myrtir í skotárás í Michoacan-ríki í vesturhluta Mexíkó í gær og fimm til viðbótar særðust.Liðsmenn þjóðvarðliðs Mexíkó voru kallaðir út í Michoacan-ríki í nóvember.EPA / Ivan VillanuevaEkki er vitað hverjir voru að verki en nokkur glæpagengi halda ríkinu í heljargreipum ofbeldis. Lögregla leitar nokkurra manna sem grunaðir eru um ódæðið og eru taldir tengjast Jalisco-eiturlyfjagenginu.Það er talið hafa fengið sautján ára ungmenni til að myrða bæjarstjóra í Nahuatzen-héraði í maí, sem varð kveikja umfangsmikilla mótmæla. Lögreglumennirnir fimm voru myrtir daginn áður en heimamenn mæta Suður-Afríku í opnunarleik heimsmeistaramótsins í fótbolta í Mexíkóborg.