22 ríki skipa Írönum að hætta atlögum að fólki á „okkar grund“

Fulltrúar 22 ríkja krefjast þess að írönsk stjórnvöld hætti umsvifalaust atlögum að fólki á „okkar landi“, eins og það er orðað í sameiginlegri yfirlýsingu Bandaríkjanna, Svíþjóðar, Danmerkur, Finnlands og fleiri Evrópuríkja auk Ástralíu.Öryggisþjónustur Írans eru sérstaklega fordæmdar fyrir að nýta sér þjónustu alþjóðlegra og staðbundinna glæpagengja til að grafa undan alþjóðlegu öryggi og fullveldi ríkja. „Íran ber umsvifalaust að hætta tilraunum til manndrápa og mannrána, ofsóknum og hótunum og öðrum atlögum að fólki,“ segir í yfirlýsingunni.Byltingarvörðurinn og Quds-sveitir hans, sem starfa víða um heim, hafi skipulagt hættulegar aðgerðir gegn írönsku andófsfólki, blaðamönnum, samfélagi gyðinga og hagsmunum Ísraels. „Við stöndum sameinuð og staðföst í vörnum lands og þjóðar,“ segir ja
22 ríki skipa Írönum að hætta atlögum að fólki á „okkar grund“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd