Leó páfi segir útilokað að trúa á Jesúm og kynda undir stríðsrekstri á sama tíma

Leó páfi segir útilokað að segjast trúa á Jesú Krist og kynda undir stríðsrekstri á sama tíma. „Við getum ekki trúað á Jesú og líka drepið saklaust fólk,“ sagði Leó.EPA / CIRO FUSCOPáfi lét þessi orð falla þegar hann predikaði við vígsluathöfn miðturns Sagrada Familia dómkirkjunnar í spænsku borginni Barcelona. Leó hefur frá því hann tók við embætti andæft stríðsrekstri og gagnrýndi árásir Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran harðlega.Eftir að Leó bað fyrir friði um miðjan apríl sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti að páfi skildi ekki tala um eitthvað sem hefði lítið vit á. Leó kvaðst á móti ætla að halda áfram að flytja boðskap friðar.
Leó páfi segir útilokað að trúa á Jesúm og kynda undir stríðsrekstri á sama tíma

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd