Kanadíska ríkisstjórnin kynnti í dag nýtt lagafrumvarp sem myndi banna börnum yngri en 16 ára aðgang að samfélagsmiðlum og jafnframt setja auknar reglur um starfsemi gervigreindarspjallmenna.Frumvarpið nefnist Digital Safety Act og í því felst að samfélagsmiðlafyrirtækjum sé óheimilt að leyfa einstaklingum undir 16 ára aldri að stofna eða halda úti reikningum á samfélagsmiðlum. Fyrirtækin gætu þó sótt um undanþágu ef þau sýna fram á að fullnægjandi öryggisráðstafanir hafi verið innleiddar til verndar börnum. „ÖRYGGI BARNA MÁ EKKI VERA AUKAATRIÐI“ Menningarmálaráðherra Kanada, Marc Miller, segir að þau hafi séð alvarlegar afleiðingar þess sem getur gerst þegar skaðlegt efni dreifist á netinu. „Öryggi barna má ekki vera aukaatriði.“Frumvarpið tekur einnig til gervigreindarspjallmenna og f