„Þetta er ógn sem verður að taka alvarlega,“ segir Thomas Nilsson, yfirmaður leyniþjónustu sænska hersins (MUST). Ný rannsókn norrænu fjölmiðlanna SVT, NRK og DR og eistneska miðilsins Delfi sýnir að Rússar eru að byggja upp hernaðargetu við landamæri Norðurlanda og Eystrasaltsríkja.Rannsóknin byggir á samanburði gervihnattamynda frá svæðum nærri landamærum Rússlands, við Noreg, Finnland og Eystrasaltsríkin. Nilsson segir Rússa byggja mannvirki sem geti tekið á móti hermönnum þegar innrásarstríði þeirra í Úkraínu lýkur. „Að því lúta áætlanirnar um tilganginn hjá Rússum, ef hann kemur í ljós geta þeir sjálfsagt nýtt búnaðinn. Hann er ekki þarna bara til sýnis.“