Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í borgarstjórn, hefur þegið boð Hildar Björnsdóttur um formennsku í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur. Þessu greinir hann frá í færslu á Facebook.„Það vakti athygli er nýr meirihluti D, C og B var myndaður í borgarstjórn 27. maí að borgarstjóri sagðist myndu gera það að tillögu sinni að oddviti Miðflokksins yrði kjörinn stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Sýndist sitt hverjum um þessa tilhögun og ég taldi rétt að íhuga málið vandlega,“ skrifar Ari.Hans niðurstaða sé að hann vilji ekki skorast undan þessu verkefni. „Þar vegur þyngst að við í Miðflokknum buðum okkur fram til að þjóna Reykvíkingum og formennska í OR veitir tækifæri til að setja mark sitt á stefnumörkun sem skiptir miklu fyrir alla íbúa borgarinnar og miklu fleiri.“ „GRÍÐARLEG TÆKIFÆRI ER